Ábyrgðaraðili
Spraytan.is er rekið af Sólbaðsstofu ehf., kt. 571122-1380, Faxafeni 10, 108 Reykjavík, sem einnig rekur Sólbaðsstofuna Sæluna. Sólbaðsstofa ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt þessari stefnu. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á saelan@saelan.is eða hringja í 544 2424.
Vefurinn
Á vefnum eru engin eyðublöð og hann notar hvorki vafrakökur né mælingar eða auglýsingatæki. Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare, sem skráir tæknilegar upplýsingar á borð við IP-tölu og tegund vafra í stuttan tíma til að halda vefnum öruggum og gangandi.
Á síðunni er kort frá Google Maps. Þegar kortið birtist fær Google tæknilegar upplýsingar um tækið þitt, svo sem IP-tölu, samkvæmt persónuverndarstefnu Google.
Bókanir
Tímar eru bókaðir í gegnum Noona. Þær upplýsingar sem þú skráir þar, svo sem nafn, símanúmer, netfang og tími, berast okkur svo við getum tekið á móti þér. Noona vinnur upplýsingarnar einnig samkvæmt eigin skilmálum og persónuverndarstefnu.
Áskrift
Áskrift er keypt og henni stýrt í gegnum Repeat. Þar vinnum við nafn, netfang, kennitölu og símanúmer, upplýsingar um áskriftina og greiðslusögu hennar, ásamt rafrænni undirritun áskriftarsamnings. Kortaupplýsingar fara beint til greiðslumiðlunar og berast okkur aldrei.
Samskipti
Ef þú hefur samband með tölvupósti, síma eða á samfélagsmiðlum vinnum við þær upplýsingar sem þú sendir okkur til að svara erindinu.
Tilgangur og heimild
- Að veita þjónustuna og standa við áskriftarsamning (framkvæmd samnings).
- Að halda bókhald og varðveita reikninga (lagaskylda).
- Að halda vefnum öruggum og svara fyrirspurnum (lögmætir hagsmunir).
Varðveisla
Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf krefur. Bókhaldsgögn, svo sem upplýsingar um greiðslur vegna áskriftar, eru varðveitt í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald.
Miðlun
Persónuupplýsingar eru ekki seldar eða afhentar öðrum í markaðsskyni. Þær berast aðeins vinnsluaðilum sem veita okkur þjónustu, svo sem bókunarkerfi (Noona), áskriftar- og greiðslukerfi (Repeat), hýsingu (Cloudflare) og tölvupósti (Google Workspace), eða þegar lög krefjast þess.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu eða andmæla henni, og fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi, með þeim takmörkunum sem lög setja. Sendu beiðni á saelan@saelan.is.
Ef þú telur að vinnsla brjóti gegn lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Breytingar
Stefnan getur breyst. Nýjasta útgáfan er alltaf á þessari síðu.
Síðast uppfært 21. nóvember 2026.
