Spraytan.is

Skilmálar

Áskrift að spraytan

Skilmálar spraytan-áskriftar hjá Spraytan.is, sem Sólbaðsstofa ehf. rekur í Faxafeni 10.

9.990 kr. á mánuði · allt að 4 tímar á mánuði · eins mánaðar uppsagnarfresturMín áskrift: skoða eða segja upp

ÁSKRIFTARSAMNINGUR – SJÁLFVIRKUR SPRAYTAN-KLEFI

Sólbaðsstofa ehf.

Kennitala: 571122-1380

ÁSKRIFT

Með þessum samningi gerist undirritaður áskrifandi að sjálfvirkum spraytan-klefa hjá Sólbaðsstofu ehf.

Áskriftin felur í sér:

Ónotuð skipti fyrnast í lok hvers almanaksmánaðar, flytjast ekki milli mánaða og eru hvorki innleysanleg né endurgreidd.

MIKILVÆG SKILYRÐI

Áður en samningur þessi er undirritaður er sérstaklega áréttað að:

1. Samningstími

Samningur þessi er ótímabundinn en bundinn eins (1) mánaðar uppsagnarfresti.

Greiðsluskylda stofnast við undirritun samningsins og helst í gildi þar til samningnum hefur verið sagt upp samkvæmt skilmálum þessum og uppsagnarfresti er lokið.

2. Greiðslur

Mánaðargjald áskriftarinnar er 9.990 kr. og greiðist fyrirfram samkvæmt skráðum greiðslumáta.

Greiðsla fer fram með greiðslukorti, beingreiðslu eða öðrum greiðslumáta sem Sólbaðsstofa ehf. samþykkir.

Greidd áskriftargjöld eru ekki endurgreidd nema lög mæli fyrir um annað.

Sólbaðsstofa ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðskrá sinni með að minnsta kosti eins (1) mánaðar fyrirvara. Breytingar hafa ekki áhrif á þegar greidd tímabil.

3. Uppsögn

Áskriftarsamningi er eingöngu hægt að segja upp rafrænt í gegnum „Mín áskrift“ á www.spraytan.is.

Engin önnur uppsagnarleið telst gild. Munnleg uppsögn við starfsmann, símtal, tölvupóstur, SMS, skilaboð á samfélagsmiðlum eða önnur samskipti teljast ekki gild uppsögn og hafa því engin áhrif á gildistíma samningsins eða greiðsluskyldu samkvæmt honum.

Uppsögn telst hafa borist þegar hún hefur verið skráð í gegnum „Mín áskrift“ á www.spraytan.is.

Uppsagnarfrestur er einn (1) mánuður og hefst frá næstu mánaðamótum eftir að gild uppsögn hefur verið skráð.

Á uppsagnarfrestinum helst áskriftin virk og mánaðarlegar greiðslur halda áfram samkvæmt samningnum.

Greiðsluskylda fellur ekki niður við uppsögn heldur stendur óbreytt út uppsagnarfrestinn, óháð því hvort þjónustan sé nýtt.

Að uppsagnarfresti loknum fellur samningurinn sjálfkrafa úr gildi og engar frekari greiðslur verða innheimtar.

4. Greiðsluskylda

Áskrift er samningsbundin þjónusta en ekki greiðsla fyrir einstakar meðferðir.

Greiðsluskylda byggist á gildandi áskriftarsamningi en ekki á nýtingu þjónustunnar.

Hvort sem viðskiptavinur nýtir enga, eina eða allar þær meðferðir sem fylgja áskriftinni hefur það ekki áhrif á greiðsluskyldu samkvæmt samningnum.

Ónotuð skipti veita hvorki rétt til inneignar né endurgreiðslu.

5. Vanskil

Takist ekki að skuldfæra mánaðargjald af skráðum greiðslumáta helst samningurinn engu að síður í fullu gildi.

Misheppnuð skuldfærsla:

Ógreidd áskriftargjöld safnast upp þar til þau hafa verið greidd eða samningnum hefur verið sagt upp samkvæmt skilmálum þessum og uppsagnarfresti lokið.

Sólbaðsstofa ehf. er heimilt að stöðva aðgang að þjónustunni vegna vanskilagreiðslna þar til skuld hefur verið greidd.

Slík lokun hefur ekki áhrif á greiðsluskyldu samkvæmt samningnum.

Ógreiddar kröfur geta verið sendar til lögmætrar innheimtu ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði samkvæmt lögum.

6. Greiðslumat

Sólbaðsstofa ehf. áskilur sér rétt til að kanna greiðsluhæfi nýrra áskrifenda samkvæmt gildandi lögum.

Við vanskil getur fyrirtækið óskað eftir skráningu á vanskilaskrá þegar lagaskilyrði eru uppfyllt.

7. Notkun þjónustunnar

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að fylgja leiðbeiningum Sólbaðsstofu ehf. um undirbúning, notkun og eftirmeðferð spraytan.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að upplýsa um ofnæmi, húðsjúkdóma eða aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á meðferðina.

Sólbaðsstofa ehf. ber ekki ábyrgð á niðurstöðu meðferðar ef leiðbeiningum hefur ekki verið fylgt.

8. Misnotkun

Áskriftin er eingöngu ætluð skráðum viðskiptavini.

Óheimilt er að lána, selja, framselja eða leyfa öðrum að nýta áskriftina.

Verði misnotkun staðfest er Sólbaðsstofu ehf. heimilt að loka áskrift tafarlaust án endurgreiðslu.

9. Persónuvernd

Sólbaðsstofa ehf. vinnur persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar í tengslum við rekstur þjónustunnar og verða ekki afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lögum eða með samþykki viðskiptavinar.

10. Breytingar á skilmálum

Sólbaðsstofa ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum eða verðskrá.

Breytingar skulu kynntar með að minnsta kosti eins (1) mánaðar fyrirvara á www.spraytan.is eða með rafrænni tilkynningu til áskrifenda.

11. Lög og varnarþing

Um samning þennan gilda íslensk lög.

Rísi ágreiningur um túlkun eða framkvæmd samnings þessa skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema lög mæli fyrir um annað.

STAÐFESTING VIÐSKIPTAVINAR

Með rafrænni undirritun þessa samnings staðfesti ég að ég hef lesið, skilið og samþykkt alla skilmála samnings þessa. Ég geri mér grein fyrir að um bindandi áskriftarsamning er að ræða, að mánaðargjald greiðist samkvæmt gildandi samningi, að samningurinn sé með eins (1) mánaðar uppsagnarfresti og að greiðsluskylda haldist í gildi út uppsagnarfrestinn, óháð því hvort þjónustan sé nýtt eða ekki. Ég geri mér jafnframt grein fyrir að misheppnuð skuldfærsla eða vanskil fela ekki í sér uppsögn samningsins og að áskrift er eingöngu hægt að segja upp rafrænt í gegnum „Mín áskrift“ á www.spraytan.is. Ég skil að munnleg uppsögn við starfsmann, símtal, tölvupóstur, SMS, skilaboð á samfélagsmiðlum eða önnur samskipti teljast ekki gild uppsögn og hafa ekki áhrif á gildistíma samningsins eða greiðsluskyldu samkvæmt honum.

RAFRÆN UNDIRRITUN

Þessi samningur er undirritaður rafrænt.

Rafræn undirritun hefur sama lagagildi og eiginhandarundirritun samkvæmt íslenskum lögum.

Við undirritun stofnast bindandi samningssamband milli viðskiptavinar og Sólbaðsstofu ehf. Undirritandi staðfestir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt öll ákvæði samnings þessa.

Undirritandi staðfestir jafnframt að honum sé ljóst að eina gilda leiðin til að segja upp samningnum er með rafrænni uppsögn í gegnum „Mín áskrift“ á www.spraytan.is.

Við rafræna undirritun eru dagsetning og tímasetning undirritunar skráð ásamt þeim auðkenningarupplýsingum sem rafræna undirritunarlausnin varðveitir í samræmi við gildandi lög og reglur. Þær upplýsingar geta verið notaðar sem sönnun fyrir samþykki og gildistöku samningsins ef ágreiningur kemur upp.